Fréttastofa RÚV
Ræstingafélagið Nostra hefur ítrekað brotið gegn kjarasamningum segir varaformaður verkalýðsfélagsins Hlífar. Forsvarsmenn Nostru vísa ásökunum verkalýðsfélagsins á bug. Verkalýðsfélaginu Hlíf hafa borist um þrjátíu launakröfur og fjórtán kröfur vegna ógreidds orlofs frá félagsfólki sem starfar fyrir ræstingarfyrirtækið Nostru í Hafnarfirði. Kröfurnar snúa meðal annars að seinagangi í launagreiðslum og röngum launaútreikningi segir Gundega Jánlinina Jaunlinina, varaformaður Hlífar. Hún segir ræstingafyrirtækið hvorki fara eftir kjarasamningum né almennum reglum á vinnumarkaði. „Við höfum fengið þó nokkuð margar kvartanir um að launin komi seint, þá erum við að tala frá fyrsta til fimmta og stundum áttunda hvers mánaðar sem launin eru greidd. Þetta hefur gerst alveg þó nokkuð mörgum sinnum.“ Gundega segir kvartanir starfsmanna einnig snúa að skipulagi vinnutíma, launaútreikningi og ógreiddu orlofi. Stór hluti starfsmanna Nostru séu konur af erlendum uppruna. Hún segir marga starfsmenn tilheyra jaðarsettum hópum sem þekki ekki rétt sinn. „Þetta er náttúrulega fólk kannski þekkir ekki reglur á íslenskum vinnumarkaði, þekkir ekki rétt sinn og veit ekki hvernig hlutunum á að vera háttað hér á landi. Margir starfsmenn eru líka rosalega hræddir um að missa vinnuna og eru að reyna einhvern veginn að þrauka án þess að kvarta.“ Framkvæmdastjóri Nostru segir ásökununum ætlað að skaða viðskiptasambönd fyrirtækisins Gundega segir verkalýðsfélagið hafa átt í talsverðum samskiptum við ræstingafyrirtækið undanfarin tvö ár sem skilað hafi misjöfnum árangri. „Þau hafa sagt okkur að þau séu lítið fyrirtæki og að því þurfi þau ekki að fylgja almennum reglum eins og stærri ræstingafyrirtæki, sem við höfum náttúrulega leiðrétt og við höfum verið í ágætum samskiptum þannig séð. Við erum búin að vera að reyna að leiðbeina þeim um hvernig ráðningarsamningar eiga að líta út og þó svo að eitthvað hafi svo sannarlega verið lagað er mjög langt í að þetta teljist ásættanlegt.“ Framkvæmdastjóri Nostru segist í skriflegu svari til fréttastofu hafna ásökunum Hlífar. Fyrirtækið hafi ekki vitneskju um að nokkurt mál sé opið hjá Hlíf gagnvart Nostru, enda hafi verið kappkostað að vinna strax úr ábendingum sem upp hafi komið. Það sé þeirra mat að tilgangur ásakananna verkalýðsfélagsins sé að skaða viðskiptasambönd fyrirtækisins.
Go to News Site