Fréttastofa RÚV
Einn var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Reykjanesbraut, nærri álverinu í Straumsvík, á fimmta tímanum. Þorsteinn Gunnarsson aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir viðbragðsaðila enn að störfum á vettvangi og viðbúið að tafir geti orðið á umferð. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var áreksturinn á akrein sem liggur frá Hafnarfirði og út á Reykjanes. Álverið í Straumsvík. Áreksturinn varð á þessum vegi.RÚV / Ragnar Visage
Go to News Site