Fréttastofa RÚV
Þingfundi var slitið klukkan 17:16 í dag. Til umræðu var frumvarp til laga um innviðafélag um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Þingmenn minnihlutans höfðu gagnrýnt það fyrirkomulag að boðað væri til þingfundar laugardaginn fyrir sjómannadag. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var meðal þeirra sem gagnrýndu fundarboðið. „Ég hafði bara ekki áttað mig á því fyrr en seint í gærkvöldi að til stæði að funda hér í dag á hátíðarhelgi sjómanna. Það hefur verið samkomulag um það síðan sjómannadagurinn var settur fyrst árið 1938 á Ísafirði og í Reykjavík og haldinn hátíðlegur að það væri ekki fundað á þessum degi, á þessari helgi. Það er verið að brjóta blað í sögu þingsins og sýna auðvitað sjómannastéttinni og fjölskyldum sjómanna algera vanvirðu með því að boða hér til þingfundar. Auðvitað eru margir þingmenn, sérstaklega af landsbyggðinni, farnir til síns heima til að taka þar þátt í hátíðahöldum sem eru í flestum bæjum og þorpum um allt land,“ sagði Jón í púlti Alþingis á ellefta tímanum fyrir hádegi. „ Ég vil skora á hæstvirtan forseta að fresta þessum fundi og leyfa okkur að fara og taka þátt í því sem á að vera númer eitt þessa helgi, að sýna sjómönnum og fjölskyldum þeirra þá virðingu sem vera ber.“ Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, svaraði Jóni. „Ég kem hér upp í fundarstjórn forseta af þessu tilefni og vil byrja á því að óska sjómönnum til hamingju með morgundaginn. Það er alltaf gleðilegt að fagna sjómannadeginum. Ég vil líka benda þingmönnum á að auðvitað eru þingstörfin hér samvinnuverkefni og það hefur legið fyrir í þessari viku frá því á mánudaginn hvaða verkefni biðu þingsins í þessari viku og hvaða framgangur þyrfti að eiga sér stað í þessari viku. Það er samgönguáætlun og innviðafélag,“ sagði Guðmundur Ari. Þau hafi enn verið á dagskrá og sjálfsagt að ræða þau á laugardegi. „Mér finnst þeir þingmenn sem voru hér á undan að ræða um kjör sjómanna og mikilvægi þess að við ræddum þau mál — það er gott og vel en ég tel ekki síður mikilvægt að við notum þennan dag til að klára hér samgönguáætlun og innviðafélagið því að þar erum við einmitt að leggja til miklar úrbætur á vegum landsins, höfnum landsins, á þessum grunninnviðum, sem skipta einmitt sjómenn landsins svo miklu máli svo þeir geti sinnt sínum störfum í öryggi, og tryggt þessa verðmætasköpun fyrir landið allt,“ sagði hann. Þó virðist sem gagnrýni á tímasetningu fundarins hafi haft áhrif í ljósi þess að þingfundinum var slitið á sjötta tímanum og umræðu um innviðafélagið slegið á frest.
Go to News Site