Collector
Í miklu betra formi eftir að hafa kynnst Bubba | Collector
Í miklu betra formi eftir að hafa kynnst Bubba
Fréttastofa RÚV

Í miklu betra formi eftir að hafa kynnst Bubba

Bubbi Morthens er sjötugur í dag, sjötta júní. Hann heldur upp á afmælið með stórtónleikum í Laugardalshöllinni. Fyrri afmælistónleikarnir voru haldnir í gær þar sem þúsundir komu að fagna afmælinu og heyra tónlist Bubba. „Það voru þrír tímar í gær hérna bara á fullu gasi en það er ekkert mál fyrir Bubba, hann bara virkar þannig, alltaf allt í botni allan tímann,“ segir Halldór Gunnar Pálsson hljómsveitarstjóri. Halldór segir það vera rannsóknarefni hvaðan orkan hans Bubba kemur. „Ég er í miklu betra formi eftir að ég kynntist Bubba vegna þess að hann er með svo mikinn mótor. Það er svo mikil orka í honum en ég veit ekkert hvaðan hún kemur.“

Go to News Site