Fréttastofa RÚV
Kjarnaborunum vegna rannsóknar á fýsileika lagningar Eyjaganga á Eiðinu í Vestmannaeyjum er lokið. Þær hófust í apríl. Fréttamiðillinn Tígull greinir frá þessu og segir góðan gang hafa verið í rannsókninni og mikilvægum áfanga náð. Kjarnaborunin hafi skilað dýrmætri þekkingu á jarðlögunum sem nýtast muni við undirbúning og hönnun ganganna. Styrkleiki bergsins er rannsakaður og eins hve mikið vatn lekur í gegnum það. Starfsmenn Ræktunarsambands Flóa og Skeiða koma kjarnabornum, sem kallaður er Karl Prins, fyrir á Landeyjasandi við bæinn Kross, þar sem rannsóknum verður fram haldið. Heildarkostnaðurinn við borunina nemur um tvö hundruð milljónum króna. Það fjármagn fæst frá sveitarfélögum í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi ásamt fyrirtækjum um land allt, samkvæmt upplýsingum Haraldar Pálssonar, framkvæmdastjóra Eyjaganga ehf. Haraldur sagði í apríl niðurstöður eiga að fást fyrir árslok, sem gegna lykilhlutverki við mat á hversu raunhæf veglagningin er. Þá verði hægt að ákveða hvort frekari rannsóknir séu forsvaranlegar.
Go to News Site
Mbl
Mbl
Vísir
Mbl
Viðskiptablaðið
Vísir
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV