Collector
Þungarokkarar á öllum aldri samankomnir í Stykkishólmi | Collector
Þungarokkarar á öllum aldri samankomnir í Stykkishólmi

Þungarokkarar á öllum aldri samankomnir í Stykkishólmi

Þungarokkarar hafa flykkst í íþróttahúsið í Stykkishólmi um helgina þar sem tónlistarhátíðin Sátan fer fram í þriðja sinn. Á hátíðinni stígur fjölbreytt úrval fremstu þungarokkshljómsveita Íslands á svið ásamt völdum erlendum sveitum. Gísli Sigmundsson, skipuleggjandi hátíðarinnar, segir helgina fara vel af stað. „Þetta er búið að ganga alveg ótrúlega vel. Þetta er auðvitað þriðji dagurinn hjá okkur núna í þriðja skiptið og það er frábær mæting, frábær stemning og frábærar hljómsveitir.“ Eitt markmið hátíðarinnar er að bjóða upp á fjölbreytt úrval af þungarokki, segir Gísli. Markmiðið sé að bjóða upp á allt sem í boði sé en það sé auðvitað erfitt í framkvæmd. Hugmyndin sé þó að allir þungarokksunnendur geti fundið eitthvað við sitt hæfi á Sátunni. Særa fram hljómsveitir úr dvala Á hátíðinni koma fram ólíkar hljómsveitir, skipaðar bæði vönum þungarokkurum og einhverjum sem eru að stíga sín fyrstu skref. Meðal þeirra sem hafa snúið aftur á sviðið á hátíðinni er íslenska hljómsveitin I Adapt. „Fyrsta árið vorum við að velta fyrir okkur hvaða hljómsveitir væri gaman að sjá. I Adapt kom upp á borðið og þeir voru búnir að vera hættir þá í þó nokkuð mörg ár en við ákváðum bara að heyra í þeim hljóðið. Það endaði með því að það tókst og okkur fannst það frábært, þannig að núna erum við komin aðeins í gírinn og erum með fornleifauppgröft á hverju ári,“ segir Gísli. Í dag opnar stúkan í íþróttahúsinu fyrir ungu fólki sem fær einnig tækifæri til þess að njóta hátíðarinnar. „Hérna eru allir krakkar velkomnir, með eða án foreldra. Þeir ætla að horfa á Sólstafi taka smá hljóðprufu. Vonandi hafa krakkarnir gaman af,“ segir Gísli.

Go to News Site