Fréttastofa RÚV
Tveimur málum gegn flugfélaginu SAS, þar sem farið var fram á skaðabætur vegna flugferða, var vísað frá Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku. Fyrirtækið HF15, í eigu Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, höfðaði þau bæði en hann rekur vefinn flugbaetur.is. Flugferðirnar sem bóta var krafist fyrir voru milli Kristiansund og Oslóar annars vegar og Stavanger og Kaupmannahafnar hins vegar. Í fyrra fluginu var farþeganum, að hans sögn, neitað um far vegna yfirbókunar. Seinna fluginu var aflýst. Kröfurnar um 400 evrur í staðlaðar bætur framseldu farþegarnir, sem eru báðir íslenskir, til HF15 sem fór með þær fyrir dóm. Krafðist 7000 evra í málskostnað í hvoru máli Eftir að hafa fengið skaðabótakröfur beggja farþega framseldar gerði HF15 kröfu um samtals 7.400 evrur, rúmlega milljón íslenskra króna að núvirði, fyrir hvort mál. Þar af var meirihlutinn fyrir málskostnað. Fram kemur í dómunum að HF15 fór með fjögur önnur mál en þessi tvö gegn SAS. Flugfélagið reyndi að sætta málið með því að greiða 400 evrur í skaðabætur og 70 þúsund krónur í málskostnað fyrir hvern farþega. Þessu hafnaði HF15 og málið fór fyrir dóm. Málunum var, sem fyrr segir, vísað frá dómi en hann taldi að ekki væri hægt að höfða þau á Íslandi. Flugin sem kröfurnar byggðu á voru hvorki til né frá landinu auk þess sem flugfélagið SAS er ekki með lögheimili né starfsstöð á landinu.
Go to News Site