Fréttastofa RÚV
Íslendingur sem saknað var á Taílandi er í haldi innflytjendayfirvalda þar í landi. Ekkert hafði spurst til Sindra Freys Jenssonar í rúmlega tvær vikur þar til í nótt þegar fjölskylda hans fékk bréf þar sem ræðismaður Íslands í Taílandi staðfesti að Sindri Freyr væri í innflytjendafangelsi í Bangkok. „Við fáum engar upplýsingar um hvernig honum líður,“ segir Erla Björg Jensdóttir, systir Sindra Freys. „Við vitum bara að aðstæður þarna eru hörmulegar.“ Sindri Freyr var í fríi í Pattaya í austurhluta Taílands ásamt tvíburabróður sínum en þeir urðu viðskila 23. maí , fyrir rúmlega tveimur vikum. Erla Björg segir hræðilegt að geta hvorki verið í samskiptum við hann né fengið upplýsingar um líðan hans. Hún telur líklegt að Sindri Freyr hafi verið handtekinn daginn sem hann varð viðskila við bróður sinn. Hún segir fjölskylduna vera þakkláta almenningi fyrir að deila upplýsingum áfram og vekja athygli á leitinni að Sindra Frey.
Go to News Site