Fréttastofa RÚV
Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt af Héraðsdómi Reykjaness fyrir umferðarlagabrot. Manninum er einnig gert að greiða tæpar 600 þúsund krónur í sakarkostnað og 177 þúsund krónur í þóknun til verjanda síns. Maðurinn er sakfelldur fyrir að hafa laugardaginn 21. desember árið 2024 og mánudaginn 9. júní árið 2025 ekið bifreið „sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna“. Lögregla stöðvaði manninn við akstur í Reykjanesbæ í bæði skipti. Í blóðsýnum sem tekin voru úr manninum eftir bæði atvik mældist amfetamín og tetrahýdrókannabínól eða THC. Í dómnum segir að maðurinn hafi játað sök samkvæmt ákæru afdráttarlaust. Þar sem játning ákærða samrýmdist rannsóknargögnum taldist sannað að maðurinn væri sekur um þá háttsemi sem honum var gefið að sök. Af hálfu ákærða var krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Sviptur ökurétti ævilangt árið 2007 Í dómnum segir að refsing í málinu hafi verið ákveðin með hliðsjón af fyrri dómum sem maðurinn hefur hlotið. Frá árinu 2003 hefur manninum verið gert að greiða rúma milljón króna í sektir. Þá hefur hann verið dæmdur í fangelsi í samanlagt sex og hálft ár á síðustu 22 árum fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, ölvunarakstur, akstur sviptur ökurétti, hraðakstur, fíkniefnalagabrot og þjófnaðarbrot. Árið 2007 var maðurinn sviptur ökurétti ævilangt. Ævilanga ökuréttarsviptingin hefur verið áréttuð fyrir dómi margoft síðan þá. Þetta er í þrettánda sinn sem maðurinn er sakfelldur fyrir sviptingarakstursbrot og í áttunda sinn fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Go to News Site