Fréttastofa RÚV
Héraðsdómur Óslóar hefur úrskurðað að Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, verði látinn laus til að vera með móður sinni sem er alvarlega veik. Saksóknari áfrýjaði málinu og Høiby verður áfram í gæsluvarðhaldi þar til áfrýjunin hefur verið afgreidd í lögmannsrétti. „Við erum að sjálfsögðu ánægð með úrskurð héraðsdóms, þótt við hefðum vonast til að þurfa ekki að fara fyrir dóm,“ hefur norska ríkisútvarpið NRK eftir Petar Sekulic, verjanda Høibys. Høiby hefur verið í gæsluvarðhaldi í fjóra mánuði. Réttarhöld hafa staðið yfir honum síðan í febrúar og saksóknarar hafa farið fram á sjö ára og sjö mánaða fangelsisdóm yfir honum fyrir nauðganir, kynferðisbrot, fíkniefnabrot og ofbeldi. Høiby óskaði eftir því fyrir helgi að vera látinn laus til að vera með móður sinni sem er alvarlega veik af lungnasjúkdómi og á biðlista eftir lungnaígræðslu. Heilsu hennar hefur hrakað mikið síðustu sex mánuði.
Go to News Site