Collector
Giriş Yap
Fágætur safnkostur á Minjasafninu | Collector
Fágætur safnkostur á Minjasafninu

Fágætur safnkostur á Minjasafninu

Karl Wener Schulte fagnar 80 árum í dag og varði deginum á Akureyri þar sem hann afhenti Minjasafninu síðustu landakortin í safni sínu. Karl Werner og eiginkona hans, Gisele Schulte, hafa gefið Akureyrarbæ alls 212 kort. Elsta kortið er frá 1507. Karl eignaðist fyrsta kort sitt af Íslandi 1975, í brúðkaupsferð sinni hér, og féll fyrir landi og þjóð. Eftir fyrstu kaupin var ekki aftur snúið og þöktu kortin veggina heima hjá þeim hjónum allt þar til 2014 þegar þau byrjuðu að gefa Minjasafninu gripina. Ýmissa grasa kennir í safninu - bæði kort sem eru eingöngu af Íslandi og einnig kort sem sýna Skandinavíu, Atlantshafið og Bretlandseyjar. Þetta er fágætur safnkostur sem gleður margan gestinn fyrir norðan. Minjasafninu á Akueyri hefur áskotnast sjaldgæft safn Íslandskorta - þökk sé þýskum safnara sem tók ástfóstri við landið. Hann fagnaði áttræðisafmælinu í dag með því að afhenda síðasta gripinn í safninu.

Go to News Site