Mbl
Gervigreindin getur samið fín rokklög, jafnvel frábær rokklög, að dómi hins gamalreynda rokkara Alice Coopers – fyrir utan eitt veigamikið atriði. „Hún hefur aldrei verið ástfangin. Hjarta hennar hefur aldrei verið kramið. Hún hefur aldrei reiðst. Hún hefur aldrei verið glöð. Hún þekkir bara orð og kann að setja þau saman,“ sagði Cooper nýlega í hlaðvarpsþættinum Trunk Nation With Eddie Trunk.
Go to News Site