Collector
Giriş Yap
Aðalsaksóknari leystur frá störfum vegna meints kynferðisbrots | Collector
Aðalsaksóknari leystur frá störfum vegna meints kynferðisbrots

Aðalsaksóknari leystur frá störfum vegna meints kynferðisbrots

Karim Khan, aðalsaksóknai Alþjóðlega sakamáladómstólsins hefur verið leystur frá störfum, í það minnsta tímabundið. Stjórn réttarins greindi frá þessu í dag. Framtíð hans eigi eftir að ráðast í atkvæðagreiðslu aðildarríkja réttarins. Rannsókn á meintum kynferðisbrotum Khans hefur staðið yfir í 18 mánuði. Hann er sakaður um að hafa brotið kynferðislega á lögfræðingi sem vinnur á skrifstofu hans. Lögfræðingar Khans segja í yfirlýsingu að hann sé mótfallinn þessari ákvörðun. Hann hefur ávallt hafnað því að hafa brotið af sér. Í frétt Reuters segir að Khan sé fyrsti saksóknarinn við réttinn sem hefur formlega verið leystur frá störfum af stjórn. Khan, sem rannsakar stríðsglæpi, glæpi gegn mannúð og þjóðarmorð, hefur að undanförnu verið í leyfi vegna rannsóknarinnar.

Go to News Site