Fréttastofa RÚV
Gunnlaugur Árni Sveinsson náði í kvöld því frækna afreki að tryggja sér þátttökurétt á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Mótið er eitt fjögurra risamóta ársins hjá karlkylfingum. Gunnlaugur vann sig inn á mótið með frábærri spilamennsku í Ohio á lokaúrtökumóti fyrir Opna bandaríska mótið. Aðeins fjórir efstu kylfingarnir á úrtökumótinu unnu sér inn sæti á meistaramótinu, en leiknar voru 36 holur í dag. Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér í kvöld þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrsti íslenski karlinn til að keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til að keppa á risamóti karla. Að þeim loknum var aðeins efsti maðurinn, Davis Thompson frá Bandaríkjunum öruggur inn á samtals ellefu höggum undir pari. Gunnlaugur Árni var svo einn fjögurra sem voru jafnir í öðru sæti á samtals níu höggum undir pari. Við tók því bráðabani og þar tryggði hann sér sæti á Opna bandaríska meistaramótið sem verður haldið 18. - 21. júní í Southampton í New York ríki. Gunnlaugur Árni verður aðeins annar íslenski karlinn til að keppa á risamóti í golfi, en Haraldur Franklín Magnús komst inn á Opna breska meistaramótið árið 2018. Þá hafa tvær íslenskar konur, þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir komist inn á risamót kvenna í golfi.
Go to News Site