Collector
Lausir úr haldi á Akureyri | Collector
Lausir úr haldi á Akureyri

Lausir úr haldi á Akureyri

Varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra staðfesti við fréttastofu í dag að þeir tveir sem hefðu verið handteknir í sameiginlegri aðgerð Lögreglunnar á Norðurlandi eystra og sérsveitar ríkislögreglustjóra á föstudagskvöldið væru lausir úr haldi. Fólkið var handtekið í miðbænum á Akureyri, skammt frá Bifreiðastöð Oddeyrar, BSO. Fólkinu var sleppt um helgina að loknum yfirheyrslum og ekki hefði verið gerð krafa um gæsluvarðhald yfir þeim. Að sögn varðstjóra gengur rannsóknin á málinu vel og er lögreglan komin með góða mynd af málavöxtum. Þrjár handtökur á Akureyri í gærkvöld og nótt Lögreglustöðin á AkureyriRÚV / Kristófer Óli Birkisson

Go to News Site