Collector
Skrúðganga, kappróður og kraftakarlar á sjómannadaginn | Collector
Skrúðganga, kappróður og kraftakarlar á sjómannadaginn
Fréttastofa RÚV

Skrúðganga, kappróður og kraftakarlar á sjómannadaginn

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Mikið var um dýrðir í Hafnarfirði í tilefni sjómannadagsins. Vaskir menn og konur öttu kappi í kappróðri og kraftakarlar kepptu um titilinn Sterkasti maður Íslands. Gestum og gangandi var boðið upp á harmonikkutónlist, sumir skelltu sér í skemmtisiglingu frá Óseyrarbryggju og aðrir í skoðunarferð um hafrannsóknarskipið Þórunni Þórðardóttur. Þá voru fiskar af öllum stærðum og gerðum til sýnis. Við Grandagarð í Reykjavík mátti sjá bros á hverju andliti, enda nóg um að vera og veður með besta móti. Ungir sem aldnir skemmtu sér saman við hinar ýmsu þrautir. Á Ólafsfirði var gengið frá Hafnarvogi að Ólafskirkju í skrúðgöngu, þar sem sjómenn voru heiðraðir.

Go to News Site