Collector
„Nú þurfum við að treysta á veðurguðina til að halda áfram“ | Collector
„Nú þurfum við að treysta á veðurguðina til að halda áfram“
Fréttastofa RÚV

„Nú þurfum við að treysta á veðurguðina til að halda áfram“

Heyskapur er hafinn í Fljótshlíð. Þórir Már Ólafsson, bóndi í Bollakoti í Rangárþingi eystra, sló eitt tún seinnipartinn í gær. Þórir var í óða önn að hirða heyið og rúlla í kappi við veðurguðina þegar hann ræddi við fréttastofu. Hann segir sprettuna hafa tekið við sér í hlýindum og vætu undanfarið. „Síðustu vikur hafa verið góðar. Þetta fór aðeins hægt af stað en síðustu tvær vikur hafa verið mjög góðar,“ segir Þórir. Þórir segir heyskap alla jafna hefjast hjá mörgum bændum á svæðinu á þessum tíma árs, eftir fyrstu vikuna í júní. Spurður hvort hann hafi áhyggjur af því að rigning setji mark sitt á það hvernig slátturinn gengur segist Þórir reyna eftir fremsta megni að sleppa við skúrina. Hann vonast til þess að veðurguðirnir verði honum hliðhollir á næstu dögum. „Nú þurfum við bara að treysta á veðurguðina til að halda áfram.“

Go to News Site