Fréttastofa RÚV
Sjómannadagsráð, sem er eigandi Hrafnistuheimilanna, hefur undanfarin misseri unnið að gerð uppbyggingaráætlunar til næstu 15 ára. Við gerð áætlunarinnar var meðal annars velt upp hvernig eldra fólk myndi geta nýtt sér tækni eins og vélmenni og gervigreind til þess að auðvelda sér daglegar athafnir. Nú hefur róbót tekið til starfa á Sléttunni, hjúkrunarheimili í Fossvogi. Róbotinn vinnur í matsalnum alla daga vikunnar. „Við erum komin með róbóta, sem léttir aðeins undir störfum starfsmanna á gólfinu og gleður líka fólk sem situr hérna í þjónustumiðstöðinni. Hann tekur af borðum, eða öllu heldur, fólk þarf að setja óhreint leirtau á bakka hjá honum og svo fer hann með það inn í uppvask,” segir Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs. Aríel segir að gangi vel með róbótann megi búast við fleiri slíkum við störf á heimilum Sjómannadagsráðs. Það yrði þá í fyrstu við ræstingar og vörudreifingu. Deildarstjóri eldhússins er mjög ánægð með róbótann, sem hefur fengið nafnið Stefnir. „Mér líst bara mjög vel á hann, þetta er alveg að gera sig. Hann stoppaði um daginn og þá var fólkið að spyrja hvort hann væri lasinn eða kominn í verkfall þannig að þau eru mjög ánægð með þetta,” segir Sigrún Kjernested, deildarstjóri borðsalarins. „Ég vona að hann verði þægur og góður og verði bara samvinnuþýður, það skiptir máli. Þetta er mjög sniðugt og það er bara spennandi framundan hjá okkur,” segir Ingunn Erna Einardóttir, íbúi á Sléttuvegi, alsæl með nýja róbótann.
Go to News Site