Collector
Noregur náði jafntefli við Marokkó | Collector
Noregur náði jafntefli við Marokkó
Fréttastofa RÚV

Noregur náði jafntefli við Marokkó

Vináttuleikir karlalandsliða eru spilaðir víða um heim í dag. Marokkó og Noregur mættust í einum slíkum og það voru Marokkó-menn sem byrjuðu betur. Strax á áttundu mínútu leiksins kom Brahim Díaz liðinu yfir og 1-0 stóð allt þar til á 75. mínútu þegar Martin Ødegaard jafnaði fyrir Noreg. Þar við sat og liðin skildu jöfn 1-1. Bæði liðin keppa á HM. Noregur í I-riðli með Senegal, Írak og Frakklandi. Liðið á sinn fyrsta leik á mótinu þann 16. júní við Írak. Marokkó spilar í C-riðli ásamt Brasilíu, Haítí og Skotlandi. Fyrsti leikur liðsins er við Brasilíu þann 13. júní. Króatía mætti Slóveníu þar sem Króatar höfðu betur, 2-1. Luca Modrić og Mario Pašalić skoruðu mörk Króata og Andraz Sporar fyrir Slóveníu. Króatía leikur í sterkum L-riðli með Englandi, Gana og Panama.

Go to News Site