Collector
Spennuþrungið andrúmsloft er íbúar Perú ganga að kjörborðinu | Collector
Spennuþrungið andrúmsloft er íbúar Perú ganga að kjörborðinu
Fréttastofa RÚV

Spennuþrungið andrúmsloft er íbúar Perú ganga að kjörborðinu

Perúmenn ganga að kjörborðinu í dag í síðari umferð forsetakosninga. Þar ríkir óstöðugleiki og vantraust í garð stjórnvalda en á síðustu tíu árum hafa átta gegnt embætti forseta. Í framboði eru hægrikonan Keiko Fujimori og vinstrimaðurinn Pedro Sanchez. Í síðustu viku var framboði Fujimori mótmælt í Líma og fleiri borgum. Faðir Fujimori, Albertos Fujimori, var forseti landsins frá 1990 til 2000. Hann var dæmdur til 25 ára fangelsi fyrir glæpi gegn mannkyni vegna herfarar gegn skæruliðahreyfingunum Tupac Amuro og Skínandi stíg. Kjörstöðum verður lokað klukkan tíu í kvöld og fyrstu talna er að vænta í nótt. Fyrri umferð kosninganna var í apríl. Þá leið rúmur mánuður þar til opinberar niðurstöður þeirra voru tilkynntar, meðal annars vegna fjölda ógildra kjörseðla og áframhaldandi mótmæla. Því má gera ráð fyrir því að einhver tími líði þar til ljóst verður hvort Fujimori eða Sanchez verði næsti forseti Suður-Ameríkuríkisins.

Go to News Site