Collector
Aron Snær vann þriðja mótið í röð | Collector
Aron Snær vann þriðja mótið í röð
Fréttastofa RÚV

Aron Snær vann þriðja mótið í röð

Í kvennaflokki hafði Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar forystuna eftir gærdaginn, þar sem kylfingar léku 36 holur. Hún var með tveggja högga forskot á Karen Lind Stefánsdóttur, GKG. Eva var svo í sérflokki í dag. Hún fékk fimm fugla á fyrri níu holunum og lauk svo leik á sex höggum undir pari samanlagt. Hún vann með fimm högga forskoti á Andreu Ýr Ásmundsdóttir, GA. Sviptingar í karlaflokki Í karlaflokki var Böðvar Bragi Pálsson, GR, í fyrsta sæti eftir holurnar 36 í gær. Hann var þá þegar kominn á 12 högg undir pari og var höggi á undan Aroni Snæ Júlíussyni, GKG. Hákon Örn Magnússon úr GR var þá þriðji en hann byrjaði svo á miklum móð í dag og var orðinn efstur eftir fyrri níu holurnar. Böðvar Bragi tók svo aftur við sér á seinni níu og komst aftur í efsta sætið en það var Aron Snær sem átti lokaorðið. Hann lék seinni níu holurnar á 6 undir pari og lauk mótinu á 16 undir pari og varð tveimur höggum á undan Hákoni Erni og Böðvari Braga. Aron Snær byrjar tímabilið af krafti því hann vann bæði Reykjanesmótið og Korpubikarinn. Þriðja mót golfmótaraðar GSÍ fór fram í rjómablíðu í Þorlákshöfn um helgina. Einstefna var í kvennaflokki þar sem Eva Kristinsdóttir bar sigur úr bítum en í karlaflokki var mikil spenna. Aron Snær Júlíusson hélt áfram að gera það gott.

Go to News Site