Fréttastofa RÚV
D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra, E-listi Strandar og Voga og L-listi Lista fólksins hafa myndað nýjan meirihluta í Sveitarfélaginu Vogum. Björg Ásta Þórðardóttir, oddviti Sjálfstæðismanna og óháðra, verður bæjarstjóri. Þá verður Birgir Örn Ólafsson, oddviti E-listans, formaður bæjarráðs og Kristinn Björgvinsson, oddviti L-listans, forseti bæjarstjórnar. Greint er frá meirihlutasamstarfinu í fréttatilkynningu. „Nýr meirihluti mun byggja á þeim sterka grunni sem lagður var á liðnu kjörtímabili og því góða samstarfi sem tókst um mikilvæg verkefni fyrir sveitarfélagið. Á sama tíma verður horft fram á veginn með áherslu á traustan rekstur, öfluga þjónustu, betri upplýsingagjöf og markvissa uppbyggingu í góðu samtali við íbúa,“ segir þar. Samstarfið byggi á málefnasamningi sem miði að því að styrkja Sveitarfélagið Voga til framtíðar, efla þjónustu í heimabyggð, styrkja innviði, styðja við fjölskyldur og skapa betri skilyrði fyrir atvinnulíf og félagsstarf í vaxandi samfélagi. „Við erum þakklát fyrir það traust sem íbúar sýndu okkur í kosningunum og göngum auðmjúk en ákveðin til verka. Fram undan eru stór verkefni en líka mikil tækifæri. Nýr meirihluti mun leggja áherslu á góða samvinnu, skýra forgangsröðun, gott samtal við íbúa og áframhaldandi uppbyggingu í takt við þarfir samfélagsins,“ er haft eftir Björgu Ástu Þórðardóttur, verðandi bæjarstjóra. Þá segir í tilkynningunni að málefnasamningur meirihlutans verði kynntur nánar á næstu dögum.
Go to News Site