Collector
Loka 20 hjúkrunarrýmum á Selfossi | Collector
Loka 20 hjúkrunarrýmum á Selfossi
Fréttastofa RÚV

Loka 20 hjúkrunarrýmum á Selfossi

Tuttugu hjúkrunarrýmum á Hjúkrunarheimilinu Fossheimum og Ljósheimum á Selfossi verður lokað vegna breytinga. Til stendur að loka einni af tveimur hæðum hjúkrunarheimilisins. Skortur hefur verið á hjúkrunarrýmum undanfarin misseri. Ráðherra kynnti áætlun um uppbyggingu í mars. Þá voru yfir sjö hundruð á biðlista. Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segir ákvörðun um lokun hjúkrunarrýmanna eiga sér langan aðdraganda. „Við erum að fara í miklar framkvæmdir og endurbætur á núverandi húsnæði, auk þess að fara í nýbyggingu. Hluti af því er að loka 20 hjúkrunarrýmum sem eru staðsett inni á sjúkrahúsinu og tilheyra núna Fossheimum. Í dag eru það um 40 hjúkrunarrými þannig að það er ein hæð sem mun fara undir aðra starfsemi. En við munum samt tryggja, með ráðuneytinu, að þessi þjónusta, fyrir þessi rými, verði áfram tryggð á Suðurlandi.“ Til stóð að fara í framkvæmdir á sjúkrahúsinu á Selfossi sem ekki voru samþykktar þar sem húsið þótti ekki þola viðbyggingu. „Það var farið áfram í vegferð um að finna aðrar leiðir og niðurstaðan af þeirri vinnu er sú að stækka heilsugæsluna upp á aðra hæð, þar sem núna eru hjúkrunarrými, og byggja nýbyggingu. Og núna hefur verið staðfest að það sé búið að fullfjármagna fyrsta áfangann, sem er þessi lokun á þessum rýmum og breytingar á húsnæðinu til þess að færa upp heilsugæslu,“ segir Díana í viðtali við fréttastofu. Erfið breyting fyrir íbúa og aðstandendur Á hjúkrunarheimilinu eru í dag 40 hjúkrunarrými. Díana segir búið að hafa samband við aðstandendur flestra íbúa hjúkrunarheimilisins og upplýsa þá um breytingarnar. Þeir hafi sýnt skilning. „Þetta er náttúrulega erfið breyting. En að sama skapi getum við sagt að þessi hjúkrunarrými, sem þarna eru í dag, eru til dæmis ekki með útgengið út í garð. Ef þú ert að fara inn á heimilið þá ferðu alltaf í gegnum móttökuna á sjúkrahúsinu. Þannig að íbúar sem nú munu fá kannski húsnæði inni á öðrum hjúkrunarheimilum eru þá að komast í hentugra húsnæði að okkar mati.“ Díana segir samhliða lokuninni til skoðunar hvernig efla megi þjónustuna á öðrum sviðum. „Við eigum eftir að skoða hvað við getum gert. Hvort það séu einhverjir vinklar á því hvort það sé hægt að fara í heimahjúkrun eða eitthvað slíkt til þess að halda áfram í þeirri vegferð sem við erum með, heimaspítala HSU og fleira, þannig að það sé hægt að styrkja enn frekar umgjörðina í kringum það að fólk geti fengið þjónustu heim.“ Í dag sé óljóst nákvæmlega hvaða áhrif lokunin hafi í för með sér. Spurð um hvort íbúar verði áfram á Selfossi segir Díana það vera til skoðunar hvert þeir fari. Ekki allir þeirra kjósi að vera á Selfossi eða Suðurlandi. „Við leggjum ríka áherslu á það að vera í nánu samráði við íbúa og aðstandendur til að tryggja sem minnst rask. Við erum líka með íbúa hjá okkur sem gjarnan myndu vilja vera á öðrum stöðum, til dæmis á höfuðborgarsvæðinu þar sem þeir eru kannski með aðstandendur. Það verða allar leiðir skoðaðar og við reynum að gera þetta eins vel og hægt er.“

Go to News Site