Fréttastofa RÚV
Mónakó kappaksturinn fór fram í dag. Augu margra voru á Kimi Antonelli sem var fyrstur í tímatökunni í gær og var því á ráspól í keppni dagsins. Hann hefur síðustu fjögur mót og var langefstur í heimsmeistarakeppninni. Augu margra voru á Ítalanum unga, Kimi Antonelli á Mercedes bíl, en hann hafði unnið síðustu fjögur mót og var langefstur í heimsmeistarakeppninni. Hann ræsti fremstur, sem þykir mikið forskot á þröngri braut í Mónakó. Antonelli var svo fremstur þegar stöðva varð keppnina. Eftir að öryggisbíllinn kom í tvígang út á brautina sást svo að malbikið var byrjað að flagna og var keppni stopp á meðan. Forskot hans hvarf því en hann var enn fremstur og enginn náði að skáka honum að neinu leyti. Antonelli vann örugglega, fimmta mótið í röð og er hann stunginn af í heimsmeistarakeppninni með 43 stig forskot á næsta mann. Dagurinn var ekki eins góður hjá fyrrum heimsmeistaranum Max Verstappen sem lauk keppni eftir aðeins einn hring þegar bíllinn hans bilaði. Lando Norris hætti keppni þegar hann var um hálfnaður.
Go to News Site