Fréttastofa RÚV
Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag. Víða um land er fjölbreytt dagskrá með skemmtiatriðum, tónleikum og minningarathöfnum svo dæmi séu tekin. Íslendingar hafa haldið upp á sjómannadaginn allt frá árinu 1938. Deginum er ætlað að heiðra íslenska sjómenn, að heiðra minningu þeirra sem fórnað hafa lífi sínu á sjó og að minna á mikilvægi sjómennskunnar fyrir íslensku þjóðina. Dagskrá vegna sjómannadagsins hófst víða á föstudag eða jafnvel fyrir helgi. Eftir hádegi í dag er nóg um að vera og ættu ungir sem aldnir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi um allt land. Í Reykjavík verður til að mynda boðið upp á Bryggjusprell, útleiki og skoðanaferðir ásamt fjölda tónlistaratriða. Þá verða sjómenn heiðraðir í Hörpu klukkan 15 þar sem Karlakórinn Fóstbræður og Lúðrasveit Reykjavíkur leika við hátíðlega stund. Í Grindavík verður blómsveigur lagður að Von til minningar um þá sem farist hafa á sjó. Að því loknu verður fjölskyldudagskrá við Kvikuna þar sem verður meðal annars boðið upp á hoppukastala, kraftaþraut fyrir börn og fjölskyldudagskrá á hátíðarsviði. Deginum lýkur með hlaðborði á Sjómannastofunni Vör. Á Patreksfirði stendur yfir sýning undir yfirskriftinni Frönsku fiskimennirnir og gamli tíminn. Þar að auki verður kaffisala á vegum Kvenfélagsins Sifjar þar sem boðið verður upp á Hnallþórukaffi að hætti kvenfélagskvenna. Á Skagaströnd er jeppasýning við félagsheimilið Fellsborg. Að henni lokinni býðst áhugasömum að prófa froðurennibraut á vegum slökkviliðsins. Dagskránni lýkur með Sjómannadagshlaupinu sem haldið er á vegum Ungmennafélagsins Fram. Í Neskaupstað er hátíðarmessa í Norðurfjarðarkirkju klukkan 14 þar sem sjómenn verða heiðraðir. Eftir messuna verður nýr minningarreitur vígður áður en glens og gaman hefst við sundlaugina þar sem gestir geta meðal annars spreytt sig í reipitogi og koddaslag. Í Vestmannaeyjum hefst hátíðardagskrá á Stakkó klukkan 15. Þar verða aldnir sægarar heiðraðir undir undirleik Lúðrasveitar Vestmannaeyja og Karlakórs Vestmannaeyja. Þar verður einnig skemmtidagskrá fyrir börn með fjölbreyttum atriðum.
Go to News Site