Fréttastofa RÚV
Landhelgisgæsla Íslands í samstarfi við herstjórnir Atlantshafsbandalagsins fylgist nú með rússneska njósnaskipinu Yuri Ivanov sem er við strendur Íslands. „Landhelgisgæsla Íslands, í nánu samráði við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og herstjórnir Atlantshafsbandalagsins, fylgist nú grannt með ferðum rússnesks herskips sem siglir utan 12 sjómílna landhelgi landsins en innan efnahagslögsögunnar, n.t.t. á hafsvæðinu milli Íslands og Grænlands,“ segir á vef Stjórnarráðs Íslands. Þar segir að rússneska njósnaskipið hafi fylgst með æfingu Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi í síðustu viku. Skipið sé með takmarkaðan vopnabúnað og sinni fyrst og fremst njósnum og upplýsingaöflun. Engin merki séu um að neðansjávarinnviðum eða öryggi sjófarenda stafi ógn af skipinu. „Rússnesk herskip af þessu tagi fylgjast með æfingum og aðgerðum Atlantshafsbandalagsins og sigla reglulega inn í efnahagslögsögu annarra bandalagsríkja, en nýverið var greint frá veru skipsins sem um ræðir undan ströndum Noregs.“ Þá segir að þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hafi farið í eftirlitsflug út að skipinu í gær og tekið ljósmynd sem höfð er með tilkynningunni, og er hér að ofan. Í morgun hafi skipið verið á siglingu vestur af landinu en náið sé fylgst með ferðum þess í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Go to News Site