Collector
Baldur heldur aftur til Eyja | Collector
Baldur heldur aftur til Eyja
Fréttastofa RÚV

Baldur heldur aftur til Eyja

Breiðafjarðaferjan Baldur er á leið suður fyrir land. Hún siglir á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja frá og með morgundeginum, 8. júní, að beiðni Vegagerðarinnar. Baldur fór síðustu áætlunarferðina á Breiðafirði í bili í gær. Ferjan Særún mun sinna siglingum á milli Stykkishólms og Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs. Áætlað er að Baldur hefji á ný áætlunarsiglingar um Breiðafjörð föstudaginn 19. júní. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti færslu Baldurs í Eyjum 2. júní. Á vef Vegagerðarinnar segir að samráð hafi verið haft við heimamenn í Eyjum og Breiðafirði vegna breytinganna sem eru til komnar vegna vélarbilunar Herjólfs. Á vefnum segir að vegna mikilla anna í flutningum til og frá Vestmannaeyjum á næstunni hafi verið talið nauðsynlegt að Baldur bættist við ferjuþjónustu til Eyja frá 8.-18. júní. „Vegna erfiðra aðstæðna og óhagstæðs veðurfars hefur lítið mátt út af bregða að siglingaáætlun Herjólfs raskist. Þegar Herjólfur siglir aðeins á einni vél getur skipið illa siglt til Landeyjahafnar ef ölduhæð fer yfir 2 m og/eða ef vindur er yfir 12 m/s en það er ekki óalgengt á þessum árstíma.“ Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, sagði í viðtali við fréttastofu 4. júní að sér þætti óboðlegt að taka ferjuna Baldur úr siglingu í Breiðafirði. Þó að Særún sigli á milli Stykkishólms og Flateyjar í fjarveru Baldurs verður ekki siglt til Brjánslækjar. „Breiðafjarðarferjan Baldur hefur um árabil verið varaskip fyrir Herjólf og heimild er fyrir því í samningum Vegagerðarinnar við rekstraraðila skipsins að Baldur taki við verkefnum Herjólfs við sérstakar aðstæður. Þær aðstæður sköpuðust þegar alvarleg bilun kom upp í annarri af tveimur aðalvélum Herjólfs. Við þetta bættist óvenju óhagstætt veðurfar og bilanir í dæluskipi við Landeyjahöfn,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Go to News Site