Fréttastofa RÚV
F-35 herþotur Bandaríkjahers á flugi í Mið-Austurlöndum.Bandaríski herinn Bandaríkjaher skaut í kvöld niður tvo árásardróna Íranshers sem herinn segir að hafi ógnað skipaumferð í Hormússundi. Frá þessu greinir stjórnstöð hersins í tilkynningu á X . Það hefur talsvert mætt á völtu vopnahléi Bandaríkjanna og Írans síðustu sólarhringa en árásir voru gerðar á báða bóga síðustu nótt. Þá skutu Bandaríkjamenn niður fjóra dróna og réðust í kjölfarið á ratsjárstöðvar í suðurhluta landsins. Íranski byltingarvörðurinn svaraði með því að skjóta flugskeytum í átt að bandarískum herstöðvum í nokkrum Persaflóaríkjum.
Go to News Site