Fréttastofa RÚV
Vernharður er 14 ára gamall og á íslenska móður og norskan föður. Hann býr hér á Íslandi en keppir í Noregi, enda engar kartkeppnir á braut hér til að keppa í. „Við vorum nýflutt til Noregs árið 2019 og vorum að spá í motorcross en svo sáum við mynd á Netflix og hugsuðum að þetta væri öruggara.“ Hann er með aksturshermi heima hjá sér sem hann notar mikið og æfir sig svo í GT-akademíunni í Faxafeni. Þá hefur hann verið að keppa í hermi og gert vel í því. „Þegar ég er að æfa heima keyri ég frá tveimur og upp í fjóra tíma. Í gær keyrði ég reyndar í fimm.“ Stefnir lengra í akstursíþróttum Kartkeppnir hafa áratugum saman verið útungunarstöðvar fyrir stóru akstursíþróttirnar og þarna hafa allir formúlu eitt ökumenn byrjað og þróað hæfileika sína. Vernharður vill þó ekki alveg hugsa svo langt í bili. Hann setur sér raunhæf markmið og vill keppa í IMSA mótaröðinni. „Mig langar að komast upp í LMP3 eða LMP1. Þar er keppt á bílum sem þú getur alveg keyrt á götunum hérna en það er búið að auka kraftinn í þeim.“ Þarf að hafa hraðakstur í huga þegar að bílprófinu kemur Þar sem Vernharð er aðeins 14 ára er talsvert langt í bílprófið hjá honum. Hann hefur stundað akstursíþróttir frá brautu barnsbeini og því talsverð breyting þegar að því kemur að hinni hefðbundnu bílaumferð. Vernharður er meðvitaður um það og segir þessa reynslu nýtast þegar að ökutímunum kemur en þó þurfi að hafa eitt í huga. „Það mun hjálpa mér að einhverju leyti, eins og að keyra ekki á kant eða eitthvað, en ég held að maður gæti óvart keyrt of hratt.“
Go to News Site