Collector
Leita tveggja byssumanna sem særðu 12 gesti götuhátíðar | Collector
Leita tveggja byssumanna sem særðu 12 gesti götuhátíðar
Fréttastofa RÚV

Leita tveggja byssumanna sem særðu 12 gesti götuhátíðar

12 særðust, þar af tveir alvarlega, í skotárás í borginni Toledo í Ohio í Bandaríkjunum. Lögreglan í borginni telur að í að byssumennirnir hafi verið tveir. Joe Heffennan, lögreglustjóri í Toledo, sagðist á blaðamannafundi halda að mennirnir tveir hafi skotið hvor á annan. Skotunum var hleypt af á svæði þar sem götuhátíðin Old West End Festival var haldin. Gestir hátíðarinnar og íbúar í nágreninnu voru beðnir um að halda sig fjarri hátíðarsvæðinu þar sem byssumannsins væri leitað. Fórnarlömb skotárásarinnar eru á aldrinum 14 til 61 árs, að því er segir í frétt CBS . Fréttin hefur verið uppfærð.

Go to News Site