Fréttastofa RÚV
Gríðarleg aukning hefur orðið á nýskráningum líffæragjafa í Noregi á síðustu dögum. Í vikunni var greint frá því að heilsu Mette-Marit, krónprinsessu Noregs, hefði hrakað talsvert á síðustu mánuðum en hún glímir við lungnatrefjun. Hún þarf að gangast undir lungnaígræðslu og hefur verið sett á biðlista eftir aðgerðinni. Aleksander Sekowski, upplýsingafulltrúi hjá norsku líffæragjafastofnuninni, segir í samtali við NRK að hann hafi ekki séð viðlíka tölur um nýskráningar síðan hann hóf störf hjá stofnuninni 2012. Hann segir að í maí hafi að meðaltali um 70 manns skráð sig sem líffæragjafa á degi hverjum á Helsenorge, eins konar norskri hliðstæðu Heilsuveru. Á fimmtudag skráðu 312 sig sem líffæragjafa. Á föstudag gerðust 2.178 Norðmenn líffæragjafar. Hver líffæragjafi bjargar fjórum „Það er 31-falt á við daglegt meðaltal í maí,“ segir Sekowski. Þar að auki hafi umferð um heimasíðu líffæragjafastofnunarinnar verið í methæðum síðustu daga. Sekowski segir það mikilvægt að sem flestir skrái sig sem líffæragjafa. Hann segir margt fólk jákvætt í garð líffæragjafar, en telji sig ekki hentugan gjafa. „Fólk telur sig of gamalt, of veikt, of feitt og svo tekur það lyf,“ segir Sekowski. Það geti þó allir skráð sig, því það er á endanum mat læknis sem ræður hvort líffæri úr skráðum líffæragjafa sé notað eða ekki. „Hver líffæragjafi í Noregi bjargar að meðaltali lífi fjögurra,“ segir hann.
Go to News Site