Fréttastofa RÚV
Bandarísk stjórnvöld hyggjast fjármagna enduruppbyggingu og viðgerðir sem þarf að ráðast í í Persaflóaríkjum vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum með írönsku fé. Þetta hefur Reuters eftir heimildarmanni innan úr bandaríska stjórnkerfinu. Í frétt miðilsins segir að Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hafi beðið starfsfólk ráðuneytisins um að gera kostnaðarmat á því tjóni sem árásir Íranshers hafa valdið í Kúveit og Barein. Þref um frystar eignir hafa reynt á friðarviðræður Á föstudag sagði Mohsen Rezaei, ráðgjafi æðstaklerksins í Íran, í samtali við CNN að friðarviðræður milli Írans og Bandaríkjanna væru strand vegna þess að Bandaríkjamenn neiti að losa um frystar íranskar eignir að andvirði 24 milljarða dala. Heimildarmaður Reuters segir að til skoðunar sé að nýta íranskt fjármagn til að borga fyrir mögulegar skemmdir af völdum framtíðarárása. Hann segir að svo virðist sem ráðstöfunin verði ekki aðeins bundin við frysta fjármuni. Hafa skipst á árásum um helgina Hótanir um að beina írönskum fjármunum í þessa átt eru taldar geta reynt enn frekar á þegar brothætt vopnahlé Bandaríkjanna og Írans. Í gærkvöldi skaut Bandaríkjaher niður tvo árásardróna Íranshers sem herinn segir að hafi ógnað skipaumferð í Hormússundi. Síðustu nótt skaut herinn niður fjóra íranska dróna og réðst í kjölfarið á ratsjárstöðvar í suðurhluta Írans. Íranski byltingarvörðurinn svaraði með því að skjóta flugskeytum í átt að bandarískum herstöðvum í Barein og Kúveit.
Go to News Site