Collector
Vill setja breska hljómsveit í straff fyrir að móðga dönsku konungsfjölskylduna | Collector
Vill setja breska hljómsveit í straff fyrir að móðga dönsku konungsfjölskylduna
Fréttastofa RÚV

Vill setja breska hljómsveit í straff fyrir að móðga dönsku konungsfjölskylduna

Borgarstjórnarmaður í Árósum vill að bresku hljómsveitinni Idles verði bannað að spila oftar í borginni vegna móðgunar í garð dönsku konungsfjölskyldunnar. Frá þessu greinir DR . Hljómsveitin tróð upp á tónleikahátíðinni NorthSide í Árósum á föstudag. Á tónleikum sveitarinnar er alvanalegt að hljómsveitarfélagar, með aðstoð tónleikagesta, kalli bresku konungsfjölskylduna öllum illum nöfnum. Í þetta sinn hnýtti Joe Talbot aðalsöngvari hljómsveitarinnar einnig í dönsku konungsfjölskylduna. „Þið eruð líka með konungsfjölskyldu. Fjandinn hirði dönsku konungsfjölskylduna!“ kallaði Talbot yfir tónleikagesti af sviðinu. Gestir Danmerkur eigi að virða landið Þetta telur Bünyamin Simsek, borgarstjórnarmaður Íhaldsflokksins í Árósum, óboðlegt. Hann vill að hátíðin rjúfi tengsl sín við hljómsveitina. „Maður á ekki að koma til Danmerkur og móðga konungsfjölskylduna og gildi okkar. Ég hef enga skoðun á því hvað þeim finnst um konungsfjölskylduna í þeirra eigin landi. En þegar maður heimsækir Danmörku þá á maður að virða landið,“ segir hann í samtali við Århus Stiftstidende . Hann vill enn fremur að hljómsveitinni verði meinað að spila framar í Árósum. Í svari við fyrirspurn Ritzau segja forsvarsmenn NorthSide að hljómsveitir séu bókaðar á tónlistarlegum forsendum en ekki pólitískum. Tónlistarhátíðir séu mikilvægt menningarlegt tjáningarform. Þá er það tekið fram í svari NorthSide að tjáning Idle endurspegli aðeins viðhorf hljómsveitarinnar en ekki hátíðarinnar.

Go to News Site