Fréttastofa RÚV
Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara í vinnudeilu Félags Íslenska atvinnuflugmanna við Icelandair. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari staðfestir að samninganefndir hafi verið boðaðar til fundar við sig á morgun klukkan fjögur. Hann segir fundinum ætlað að halda samtölum áfram í deilunni en gaf ekki frekari upplýsingar um hvað yrði rætt. RÚV / Ragnar Visage
Go to News Site