Collector
Verður alltaf að vera kaffifært á morgun | Collector
Verður alltaf að vera kaffifært á morgun
Fréttastofa RÚV

Verður alltaf að vera kaffifært á morgun

Pétur missti föður sinn ungur og segir það hafa haft mikil áhrif á sig og sína lífssýn, aukið ábyrgð og tilfinningu hans fyrir samfélagi og fjölskyldu. Hann segir okkur alltaf hafa val í lífinu og þegar stór áföll dynji á þurfi að finna tilgang, vinna sig út úr erfiðum aðstæðum og koma út aðeins stærri og sterkari. Trúin hefur verið hluti af lífi hans alla tíð þó hann hafi ekki stefnt að prestsstarfinu fram að þessu. Hann hefur mikla reynslu af vinnu með fólki og leggur ríka áherslu á teymisvinnu og gott samtal. Hann var rétt þrítugur þegar hann var ráðinn sveitarstjóri í Súðavík og á sterkar tengingar vestur. Pétur var gestur Huldu Geirsdóttur í Fyrst á fætur þar sem þau ræddu fótbolta, stjórnsýslu, árin á Biskupsstofu o.fl. Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að ofan.

Go to News Site