Collector
Fjörið er hafið á Íslandsmótinu í rallakstri | Collector
Fjörið er hafið á Íslandsmótinu í rallakstri
Fréttastofa RÚV

Fjörið er hafið á Íslandsmótinu í rallakstri

Að venju stóð Akstursíþróttafélag Suðurnesja að Orkurallinu sem byrjaði seinni part föstudags og lauk í gær. Íslandsmeistararnir frá því í fyrra, Baldur Arnar Hlöðversson og Heimir Snær Jónsson voru mættir til leiks á sínum Subaru Impreza. En eftir fyrsta dag þurftu þeir að sætta sig við annað sætið. Íslandsmótið í rallakstri hófst um helgina. Eins og svo oft áður var fyrsta rallið á Suðurnesjunum og voru meistarar síðasta árs mættir til að verja titil sinn. Þá var sekúnduslagur í flokki aflminni bíla. Agnar Ingi Sigurðsson og Ísak Guðjónsson mættu til leiks á nýjum bíl í íslensku ralli, Ford Fiesta af öflugustu gerð. Þeir tóku forystu framan af og voru komnir með eina mínútu í forskot um miðbik keppninnar. En á Djúpavatnsleiðinni á laugardaginn brotnaði afturhjólabúnaður og féllu þeir að lokum niður í sjötta sætið. Það hleypti Baldri og Heimi upp í fyrsta sætið, fullkomin byrjun á titilvörninni. Í öðru sæti Orkurallsins urðu Ingvi Björn Birgisson og Valgarður Thomas Davíðsson á Ford Fiesta og þriðju Skafti Svavar Skúlason og Adam Máni Valdimarsson á Mitsubishi Lancer. Sekúnduslagur Í flokki aflminni bíla var sekúnduslagur allar 13 sérleiðarnar. Að lokum sigruðu ríkjandi meistararnir Björgólfur og Hergill Kristinssynir en voru aðeins 7 sekúndum á undan Daníel Jökli Valdimarssyni og Hönnu Rún Ragnarsdóttur.

Go to News Site