Fréttastofa RÚV
Forseti Úkraínu segir árásir Rússa nærri kjarnorkuverinu í Tsjornobyl í nótt hafa verið gerðar með einbeittum brotavilja. Hann fundar með forsætisráðherra Bretlands, Frakklandsforseta og kanslara Þýskalands í dag þar sem leiðtogarnir ræða áframhaldandi stuðning Evrópuríkja við Úkraínu. Í aðdraganda fundarins bárust fregnir frá embættismönnum í Kænugarði þar sem greint var frá því að rússneskur dróni hefði skotið á geymsluaðstöðu fyrir kjarnorkueldsneyti í grennd við kjarnorkuverið í Tsjornobyl í norðurhluta Úkraínu. Samkvæmt embættismönnunum urðu engin slys á fólki þar sem fljótt tókst að slökkva eldinn og koma í veg fyrir breytingar á geislunarstigi eldsneytisins. Árásir á þrettán héruð í Úkraínu í nótt Í færslu á samfélagsmiðlinum X segir Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, árásirnar „viðurstyggilegar“. Hann segir árásirnar hafa verið gerðar á þetta tiltekna mannvirki af ásettu ráði þar sem mikilvægi þess sé ótvírætt. Zelensky segir Rússa hafa gert loftárásir í 13 héruðum í Úkraínu í nótt. Þá hafi yfirvöld í Moskvu skotið 88 eldflaugum, rúmlega 3.000 drónum og 1.800 sprengjum á síðustu daga. Um helgina gerði Úkraínuher drónaárásir á Sankti Pétursborg í Rússlandi en þar stendur nú yfir árleg efnahagsráðstefna. Þá sögðu Rússar um 140 dróna hafa verið skotna niður í grennd við borgina og voru íbúar hvattir til þess að halda sig innandyra – í fyrsta skipti síðan stríðið hófst fyrir meira en fjórum árum. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ávarpaði ráðstefnuna í gær og sagði árásir Úkraínumanna „fordæmalausar“. Hann sagði jafnframt tilgangslaust að funda með forseta Úkraínu fyrr en friðarsamningur milli ríkjanna tveggja lægi fyrir. Fulltrúar fjögurra ríkja funda í Downingstræti Volodymyr Zelensky fundar með Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, Emmanuel Macron, forseta Frakklands og Friedrich Merz, kanslara Þýskalands í dag. Fundurinn er í Downingstræti 10 í London. Ríkin þrjú eru meðal sterkustu bandamanna Kænugarðs. Þá eru Bretland og Frakkland í forsvari fyrir Bandalag hinna viljugu (e. Coalition of the Willing), alþjóðlegs samstarfs sem vinnur að því að tryggja öryggi Úkraínu og stuðla að viðvarandi friði í og stöðugleika í öryggismálum Evrópu. Hópurinn kom síðast saman í London í desember. Þá þrýstu Bandaríkin á fulltrúa Rússlands og Úkraínu að undirrita áætlun hið snarasta um að binda enda á stríðið í Úkraínu.
Go to News Site