Fréttastofa RÚV
Sigurjón Þórðarson formaður fjárlaganefndar Alþingis segir enn stefnt að því að skila hallalausum fjárlögum á næsta ári þrátt fyrir versnandi efnahagshorfur. Meirihluti nefndarinnar telur ekki þörf á að gera breytingar á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Gert er ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með rúmlega eins milljarðs króna afgangi á næsta ári samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára. Fjármálaráðherra mælti fyrir áætluninni í mars en síðan þá hafa efnahagshorfur tekið breytingum. Verðbólgan hefur reynst þrálát, stýrivextir hækkað og almennt gert ráð fyrir að hagvöxtur verði minni. Þá átti stytting atvinnuleysisbóta úr 30 mánuðum í 18 að lækka útgjöld ríkissjóðs en styttingin varð minni eftir að breytingar voru gerðar á málinu á Alþingi. Fjármálaáætlunin var afgreidd úr fjárlaganefnd Alþingis í síðustu viku. Meirihluti nefndarinnar leggur til að hún verði samþykkt óbreytt þrátt fyrir aukna óvissu. „Í fyrsta lagi þá liggur ekki fyrir heildstætt mat á þessum breytingum [efnahagshorfum]. Í öðru lagi hvað varðar breytingar á atvinnubótaréttinum þá hefur það að mestu leyti ekki áhrif fyrr en á þarnæsta ári. Þannig að óvissan er í báðar áttir og við stefnum enn þá að hallalausum fjárlögum,“ segir Sigurjón. Er það ekki mikil bjartsýni miðað við ástandið eins og það er? „Nei það er það ekki. Það hefur verið farið yfir þessar áætlanir og það er mat sérfræðinga að óvissan núna er ekkert meiri en áður. Þannig að við stefnum í rétta átt,“ segir Sigurjón.
Go to News Site