Fréttastofa RÚV
Það er þegar ljóst að Ísland mun enda í þriðja sæti riðilsins í undankeppni HM 2027 og mun fara í umspil en England og Spánn berjast enn um efsta sætið. Íslenska liðið fer því svo til pressulaust inn í leikinn og Guðrún Arnardóttir, bakvörður í íslenska liðinu, segir liðið þess vegna geta sýnt hugrekki á vellinum gegn heimsmeisturunum. „Það tekur alla pressu af þessu og við getum kannski bara notið þess að spila, þorað og verið svolítið hugrakkar því þó að við gerum mistök þá kannski kosta þau ekki það mikið eins og oft í keppnisleikjum.“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Spáni á Laugardalsvelli á þriðjudag í leik sem hefur raunar enga þýðingu fyrir Ísland hvað næstu skref varðar. Spánn getur hins vegar tryggt sæti sitt á HM en íslenska liðið mætir pressulaust. Mæta til að vinna en ekki ekki tapa Spánn er sem stendur í efsta sæti riðilsins en er með betri innbyrðis niðurstöðu á móti Englandi og því getur liðið tryggt sig inn á heimsmeistaramótið með sigri á Íslandi. Efsta sæti riðilsins fer beint inn á mótið. Katla Tryggvadóttir fer með „Það er mikilvægt að fara inn í leikinn til að vinna hann en ekki að tapa honum ekki. Það er það sem við þurfum að gera.“ „Velkomnar á Laugardalsvöll“ „Við bjóðum þær bara velkomnar á Laugardalsvöll. Við förum inn í þennan leik til að ná í þrjú stig. Sama á móti hverjum það er, hvort það eru heimsmeistararnir eða eitthvað annað lið. Bara, velkomnar á Laugardalsvöll,“ segir Sædís Rún Heiðarsdóttir brosandi. Spánn er ríkjandi heimsmeistarari og innanborðs eru margar af stærstu stjörnunum. Sædís hlakkar til að mæta Spáni og máta sig við þær bestu. „Mér finnst þetta bara skemmtilegt. Þetta eru leikmenn sem maður vill máta sig við og það er gaman að fá að vera hluti af þessu liði og taka þátt í þessu.“ Guðrún Arnardóttir tekur í sama streng. „Það er alltaf gaman að mæta bestu leikmönnum heims og það er auðvitað mikil áskorun.“ Leikur Íslands og Spánar er á þriðjudaginn á Laugardalsvelli. Flautað verður til leiks klukkan sjö og verður leikurinn sýndur beint á RÚV 2 en upphitun í Stofunni hefst klukkan 18:20.
Go to News Site