Collector
Tilfinningaflóð þegar fyrsti risatitillinn var í höfn | Collector
Tilfinningaflóð þegar fyrsti risatitillinn var í höfn
Fréttastofa RÚV

Tilfinningaflóð þegar fyrsti risatitillinn var í höfn

Zverev hafði meiri reynslu af risamótum því þetta var fjórði úrslitaleikur hans á risamóti og í annað sinn í París. Auk þess er hann Ólympíumeistari Cobolli var hins vegar nokkuð óvænt í úrslitum því hann hafði aldrei komist lengra en í fjórðungsúrslit á risamóti. Viðureignin var jöfn og spennandi og skiptust kapparnir á að vinna. Zverev vann fyrsta settið af öryggi, 6-1. Þá varð spennan meiri því ítalski Cabolli hafði sigur í öðru setti 6-4. Zverev komst svo í 2-1 með sigri í þriðja setti, 6-4 en Cabolli vann fjórða settið eftir upphækkun, 7-5. Það var því oddasett sem skar úr um sigurvegara. Þar var Zverev mun sterkari og hann landaði sínum fyrsta risatitli með 6-1 sigri í oddasettinu. Kappinn hefur áður leikið til úrslita á risamótum en aldrei unnið, fyrr en nú. Úrslitin réðust í dag í karlaflokki á Opna franska meistaramótinu í tennis. Þar mættust Ítalinn Flavio Cobolli og Þjóðverjinn Alexander Zverev, en hvorugur hafði áður unnið risamót í tennis.

Go to News Site