Fréttastofa RÚV
Tjón vegna elds sem kviknaði í timburhakkara á Sorpu í Álfsnesi í dag nemur um 100 milljónum króna segir Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu-og samskiptasviðs hjá Sorpu. Eldsupptök eru ókunn og segir Gunnar athyglisvert að eldurinn kviknaði nokkru eftir að slökkt var á vélinni. „Það er glettilega algengt að það kvikni í vélum sem meðhöndla rusl,“ segir Gunnar. „Það er alls konar efni sem kemur í gegnum þær sem er ekki ætlað að fara í gegnum þær; gæti þá verið veip eða batterí eða eitthvað svoleiðis. En við vitum ekki hvort það hafi verið staðan hérna því vélin var ekki í gangi þegar kviknaði í henni.“ Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins sem kviknaði um hádegisbilið. Timburhakkari á Sorpu í Álfsnesi brann til kaldra kola í dag og tjónið nemur um 100 milljónum króna. Eldsupptök eru ókunn og sviðstjóri Sorpu segir það vekja athygli að slökkt var á vélinni þegar eldurinn kviknaði. Enginn slasaðist og betur fór en á horfðist í fyrstu, segir Gunnlaugur Jónsson varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Áhersla var lögð á að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist út, enda eldmatur víða. „Þegar við komum að var mikill svartur reykur sem lagði yfir allt svæðið og yfir Mosfellsbæinn. Þannig að þetta leit út fyrir að vera mikið í byrjun,“ segir Gunnlaugur. „Þetta var byrjað að fara hérna í hauginn við hliðina á þannig að við lögðum áherslu á að kæla það í byrjun áður en við réðumst á vélarnar þannig að það yrði ekki stórtjón.“
Go to News Site