Fréttastofa RÚV
Gyða Valtýsdóttir hefur verið hluti af íslensku tónlistarlífi í rúma þrjá áratugi. Hún vakti ung athygli sem ein af þeim sem stofnuðu Múm og gerði með þeim plöturnar Yesterday Was Dramatic – Today Is OK frá 1999 og Finally We Are No One sem kom út 2002. Þaðan lá leið Gyðu í tónlistarháskóla í Rússlandi, Íslandi og Sviss þar til sólóferillinn fer fyrir alvöru í gang með plötunni Epicycle árið 2016, sem er plata ársins á íslensku tónlistarverðlaununum. Árið 2018 kemur Evolution sem er fyrsta platan með frumsömdu efni. Árið eftir hlýtur Gyða tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs. Epicycle ll kemur út 2020 og Ox 2021 sem er útnefnd til tónlistarverðlauna Norðulandaráðs. Atli Már Steinarsson ræddi við Gyðu Valtýsdóttur í Plötu vikunnar á Rás 2.
Go to News Site