Collector
Flóðbylgjuviðvörun gefin út eftir skjálfta af stærðinni 7,8 | Collector
Flóðbylgjuviðvörun gefin út eftir skjálfta af stærðinni 7,8
Fréttastofa RÚV

Flóðbylgjuviðvörun gefin út eftir skjálfta af stærðinni 7,8

Frá fiskimannaþorpi á Filippseyjum. Þar í landi hafa flóðbylgjuviðvaranir verið gefnar út.EPA / FRANCIS R. MALASIG Jarðskjálfti af stærðinni 7,8 reið yfir undan suðurströnd Filippseyja skömmu fyrir miðnætti að íslenskum tíma. Flóðbylgjustofnun Kyrrahafsins hefur varað við því að flóðbylgjur gætu skollið á ströndum Filippseyja, Indónesíu, Palaú, Tavaíns og Papúa Nýju-Gíneu á næstu þremur klukkustundum. Þá hefur japanska veðurstofan varað við flóðbylgjum sem gætu náð eins metra hæð á Kyrrahafsströnd landsins.

Go to News Site