Fréttastofa RÚV
Ísraelsher segist hafa hæft hernaðarleg skotmörk í árás á vestur- og miðhluta Írans. Íranskir ríkismiðlar segja sprengingar hafa heyrst í þremur borgum, höfuðborginni Tehran, Tabriz og Isfahan. Engar upplýsingar voru gefnar um mannfall eða umfang skemmda. Íranski byltingarvörðurinn segir árásirnar hafa verið gerðar með flugskeytum sem skotið var úr lofti. Í frétt BBC segir að ekki hafi verið gerðar árásir innan þéttbýlismarka Tehran. Fyrr í kvöld gerði Íransher flugskeytaárás á norðurhluta Ísraels. Sú árás var svar við árás Ísraelshers á Beirút . Það var fyrsta árás Írana á Ísrael síðan samið var um vopnahlé í apríl. Trump sagði Netanjahú að svara ekki fyrir sig með árásum Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði eftir árás Írana að hann hefði sannfært Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels um að ráðast ekki á Íran í hefndarskyni. Trump sagði Ísraela verða að sætta sig við niðurstöðu samningaviðræðna milli Írans og Bandaríkjanna um frið. Það væri hann sem réði för en ekki Netanjahú. Trump sagði í samtali við Fox News að Bandaríkin hefðu ekki verið höfð með í ráðum þegar Ísraelsher réðst á Beirút. Hann væri óánægður með árásina. Enn staðráðinn í að semja Bandaríkjamenn og Íranar náðu samkomulagi um vopnahlé í byrjun apríl. Síðan þá hefur ekki komið til harðra átaka en segja má að það hafi hitnað í kolunum um helgina. Hormússund er enn svo gott sem lokað fyrir skipaumferð og Bandaríkin hafa einnig verið með íranskar hafnir í herkví. Samninganefndir þjóðanna hafa fundað með milligöngu Pakistana en enn virðist langt í að samið verði um frið. Trump sagði í kvöld að árásir Írana hefðu ekki haft áhrif á vilja sinn til að semja við Írana.
Go to News Site