Collector
Örn verður þjálfari Selfoss | Collector
Örn verður þjálfari Selfoss
Fréttastofa RÚV

Örn verður þjálfari Selfoss

Örn Þrastarson þjálfari Selfoss.Selfoss Selfoss gekk í dag frá ráðningu nýs þjálfara fyrir komandi leiktíð á Íslandsmóti karla í handbolta. Örn Þrastarson tekur við liðinu af Spánverjanum Carlos Martin. Örn er öllum hnútum kunnugur á Selfossi. Hann spilaði með félaginu um árabil en hefur svo verið þjálfari hjá hinum ýmsu flokkum félagsins síðustu 20 ár og verið íþróttastjóri handknattleiksdeildarinnar. Eiginkona Arnar, Perla Ruth Albertsdóttir leikur með kvennaliði Selfoss og systkini hans hafa gert það gott sömuleiðis. Haukur bróðir hans er nú hjá Rhein Neckar Löwen í Þýskalandi og Hrafnhildur Hanna og Hulda Þrastardætur eiga sömuleiðis að baki farsælan feril.

Go to News Site