Collector
„Hvert banaslys er einu of mikið“ | Collector
„Hvert banaslys er einu of mikið“
Fréttastofa RÚV

„Hvert banaslys er einu of mikið“

Það var mikið um að vera við Reykjavíkurhöfn í dag á æfingu Slysavarnaskóla sjómanna og Landhelgisgæslunnar. Markmiðið var að vekja athygli á öryggi sjómanna. Tilgangurinn að varpa ljósi á fækkun sjóslysa „Við fórum á æfingu með Slysavarnarskóla sjómanna og æfingin snerist um að fara út og láta bjarga sér um borð í þyrlu,“ segir Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu. „Hluti af hópnum fór í sjóinn, hluti af hópnum fór í gúmmíbjörgunarbát og hluti af hópnum var um borð í skipinu. Þetta er æfing sem er síðasti dagur fimm daga námskeiðs hjá Slysavarnarskólanum og það er frábært að sjá alla þessa ungu krakka sem eru að taka þátt í þessu.“ Tilgangurinn með æfingunni er að varpa ljósi á þær kröfur sem gerðar eru til sjómanna hér á landi og þann mikla árangur sem hefur náðst í fækkun sjóslysa síðustu áratugi. Og tímasetningin var engin tilviljun því sjómannadagurinn er á sunnudag. Öryggi sjómanna var í brennidepli á björgunaræfingu Slysavarnaskóla sjómanna í Reykjavíkurhöfn í dag. Einn sjómaður að meðaltali hefur farist á sjó ár hvert síðustu tuttugu árin. Aldrei farið svona langt út á haf Meðal gesta var Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sem skellti sér í blautbúning og fékk hraðkennslu í því hvernig á að bera sig að falli maður útbyrðis. „Ég hef reyndar farið á svona námskeið áður, ég er með þrjátíu tonnin. En ég hef aldrei farið svona langt út á haf og verið hent í sjóinn og svo kemur þyrla að ná í mig,“ sagði Eyjólfur að lokinni æfingu. „En þetta sýnir, og ég vil hrósa fagmennskunni sem er búin að vera hérna, sem ég er búinn að vera vitni að í dag. Og ég get sagt fyrir mig að við getum verið virkilega stolt af því sem þjóð, Íslendingar, hver árangur okkar er varðandi öryggi sjómanna.“

Go to News Site