Fréttastofa RÚV
Liðsmenn íranska fótboltalandsliðsins eru komnir með vegabréfsáritun til að ferðast til Bandaríkjanna. Frá þessu greinir Tom Barrack, sendiherra Bandaríkjanna í Tyrklandi. Þetta þýðir að liðið getur keppt á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst í næstu viku. Fyrsti leikur liðsins á mótinu er gegn Nýja-Sjálandi. Liðin mætast 16. júní í Los Angeles. „Ég er stoltur af vinnu okkar frábæra teymis í sendiráði Bandaríkjanna í Ankara við að afgreiðslu vegabréfsáritana fyrir íranska fótboltalandsliðið sem er á leið á heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum,“ ritar Barrack í færslu á samfélagsmiðlinum X. „Íþróttir eru hafnar yfir landamæri og við hlökkum til að taka á móti keppendum og aðdáendum hvaðanæva að úr heiminum.“ Þrátt fyrir að allir leikir íranska liðsins í riðlakeppni fari fram í Bandaríkjunum heldur liðið til í Mexíkó meðan á mótinu stendur. Búist er við því að liðið ferðist þangað á sunnudag. Æfingabúðir liðsins áttu upphaflega að vera í Bandaríkjunum. Þær voru færðar til Mexíkó vegna spennu í samskiptum Írans og Bandaríkjanna eftir að stríðið í Mið-Austurlöndum hófst.
Go to News Site