Collector
Tekinn á 175 kílómetra hraða í Reykjavík | Collector
Tekinn á 175 kílómetra hraða í Reykjavík
Fréttastofa RÚV

Tekinn á 175 kílómetra hraða í Reykjavík

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði ökumann fyrir að aka á 175 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80. Í dagbók lögreglu yfir verkefnin frá því klukkan 17 í gær segir að maðurinn hafi fylgt lögreglu á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum. Einn var handtekinn fyrir líkamsárás, þjófnað og brot á lögum um útlendinga. Hann hafði hrækt í andlitið á starfsmanni skemmtistaðar. Við handtöku hrækti maðurinn einnig í andlit lögreglumanns. Við komu á lögreglustöð kom í ljós að maðurinn var eftirlýstur. Einn ökumaður var fluttur á slysadeild eftir að hann ók á ljósastaur. Þá fékk lögreglan tilkynningu um umferðarslys þar sem báðir bílar voru óökuhæfir. Annar ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabíl af vettvangi.

Go to News Site