Collector
Fram blés til utanhússhandboltamóts | Collector
Fram blés til utanhússhandboltamóts
Fréttastofa RÚV

Fram blés til utanhússhandboltamóts

Framarar ákváðu að halda æfingamót fyrir þá iðkendur sem eru á leið á mótið í Gautaborg til að venja keppendur við keppni utandyra á gervigrasi. Keppendur sögðu það dýrmætt að fá þessa reynslu því vitanlega er ólíkt að spila í þessum aðstæðum. Ísold Salóme Sanchez og Hallfríður Helga Arnarsdóttir spila með Víkingi og kepptu á mótinu. „Við hötuðum þetta í byrjun en svo varð þetta betra. Þetta er frábær æfing fyrir Partille og mjög gaman.“ Mótið tókst vel til og fjöldi liða sótti mótið. Skipuleggjendur vonast til að það verði árlegt héðan í frá. „Við erum með hátt í 300 krakka hérna í dag. Það er ótrúlega gaman,“ sagði Rúnar Kárason, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar Fram.

Go to News Site