Fréttastofa RÚV
Heimsmeistaramót karla í fótbolta er handan við hornið. Mótið er það stærsta hingað til þar sem 48 þjóðir berjast um titilinn og í fyrsta sinn er það haldið í þremur löndum, Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Allir 104 leikir á mótinu verða sýndir beint á RÚV og RÚV 2 og þú getur skráð öll úrslitin á veggspjald RÚV. Best er að prenta veggspjaldið í stærð A3 og þeirri útgáfu er hægt að hlaða niður hér. HM veggspjald - A3 Hér er svo hægt að hlaða niður útfærslu fyrir A4, þá er veggspjaldinu skipt í tvennt. HM veggspjald - A4 Leiktímarnir á veggspjaldinu eru á íslenskum tíma og þar kemur einnig fram hvort leikirnir eru sýndir á RÚV eða RÚV 2.
Go to News Site